ATH Ný heimasíđa á nćstunni www.lundur.net
ATH Ný heimasíða tekin við þessari www.lundur.net
* 7/1´08 Vímuefnin sem unglingarnir nota og áhrif þeirrLundur þakkar þeim sem styrkt hafa forvarnarverkefnið Lund með fjárframlögum og í verki.Nýárs- og baráttukveðja
* 14/1´08 Bataþróun hjá unglingum og íhlutun
* 21/1´08 Vímuefnameðferð unglinga
* 28/1´08 Vandi foreldra og þjónusta SÁÁ í Göngudeildum
Dagskrá mánudagaginn 7.janúar 2008
Sími: 421-6700
Litla stelpan mín.
Ég þekki þetta af eigin raun, á barn sem er á valdi fíknarinnar. Þegar foreldrar eignast lítið barn þá er allt svo yndislegt, barnið þitt litla er svo saklaust og fallegt. Barnið stækkar og verður unglingur, allt er í lagi eða svo heldur maður þangað til annað kemur í ljós. Maður les fréttirnar: Keyrði undir áhrifum fíkniefna, tekinn með svona mikið magn af fíkniefnum, braust inn undir áhrifum fíkniefna, barði mann og annan os.fr Þetta er daglegt brauð, maður les þetta og heldur svo áfram venjulega lífinu sínu ÞANGAÐ TIL....... einn daginn vakna ég við vondann draum, litla saklausa sæta stelpan mín er farin að nota fíkniefni, þetta átti ekki að koma fyrir hjá MÉR. Ég sem reyndi að gera allt svo rétt.......
LItla stelpan mín er 18 ára gullfalleg stúlka í dag, hún notar fíkniefni daglega, hún byrjaði BARA á því að prófa að reykja hass, BARA í EITT skipti. Frá fyrsta degi kom í ljós að hún er FÍKILL, það var ekki aftur snúið.
Núna eru að koma jól og litli engillinn minn er einhversstaðar þarna úti, hún er ekki tilbúin til að leyta sér hjálpar, hún er ekki tilbúin til að koma til mömmu og biðja um hjálpina sem hún VEIT að bíður hennar. Nei, fíknin er svo sterk, hún yfirtekur litlu stelpuna mína og heldur henni í heljargreipum.
Ég veit ekki hvernig jólin verða á þessu heimili, hef sem betur fer ekki upplifað jól áður með barn í neyslu, en þessi fyrstu jól eru að koma núna og ég verð að segja alveg eins og er: HNÚTURINN Í MAGANUM ER STÓR !
Biðjum fyrir öllum sem eiga um sárt að binda um hátíðirnar.
Dagskrá mánudagaginn 17.des
Sími: 421-6700